Færsluflokkur: Menning og listir

Myndlist

Myndlistartíminn fellur því miður niður í dag :(

Myndlist og dans

Minnum á myndlistartímann í dag kl. 14:00-16:00, leiðbeinandi er Hermann Árnason.

Merengue danskennsla verður á sama tíma kl 14:00 undir stjórn Tómasar Albertssonar. Hvetjum sem flesta til að mæta og hita sig upp fyrir helgina og hafa gaman.

kveðja Virkjun


Skák og brids

Við hjá virkjun erum að kanna hvort áhugi sé fyrir því að stofna skákklúbb og eða bridsklúbb.
Endilega látið okkur vita hvort þið hafið áhuga með því að senda okkur skilaboð á facebook, póst á virkjunmannauds@gmail.com eða hringja í síma 426-5388


Kveðja
Virkjun

 


Myndlist og dans....

Fyrsti myndlistartíminn verður í dag kl. 14:00-16:00 og verður Hermann Árnason leiðbeinandi.

Merengue danskennsla kl 14:00 undir stjórn Tómasar Albertssonar. Hvetjum sem flesta til að mæta og hita sig upp fyrir helgina.

 

 

 


Skapandi skrif - Jón Kalmann með fyrirlestur

Jón Kalmann Stefánsson rithöfundur verður með fyrirlestur í Virkjun á fimmtudaginn n.k. kl 13:30. Hann verður með fyrirlestur í tengslum við skapandi skrif sem er í Virkjun alla fimmtudaga.
Eftir fyrirlesturinn býðst fólki að bera fram nokkrar spurningar.
Allir hjartanlega velkomnir. 
Fyrir þá sem ekki þekkja til Jóns Kalmanns, þá er hér smá texti um hann sem tekin var af bókmenntavefnum:
 
Jón Kalman Stefánsson fæddist í Reykjavík 17. desember 1963. Hann bjó í borginni til 12 ára aldurs en flutti þá til Keflavíkur og bjó þar til ársins 1986; þá lá leiðin aftur til Reykjavíkur, með stúdentspróf úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja upp á vasann. Frá 1975 til 1982 var hann með annan fótinn vestur í Dölum, vann meðal annars í sláturhúsinu í Búðardal og frá 1979 til 1982 stundaði hann ýmis störf, vann við saltfisk og skreið, múrverk og var eitt sumar lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli. Jón Kalman nam bókmenntir við Háskóla Íslands frá haustmánuðum 1986 og með hléum til 1991 en lauk ekki prófi. Hann kenndi bókmenntir í eitt ár við Fjölbrautaskóla vesturlands á Akranesi, hálft ár við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, skrifaði jafnframt greinar fyrir Morgunblaðið, ritdæmdi þar bækur í nokkur ár. Jón bjó í Kaupmannahöfn 1992 til 1995, las, skúraði, taldi strætisvagna. Hann starfaði sem bókavörður við Héraðsbókasafnið í Mosfellsbæ fram til vorsins 2000. Síðan þá hefur hann starfað sem rithöfundur.

Fyrsta bók hans, ljóðabókin Með byssuleyfi á eilífðina, kom út árið 1988. Síðan hefur hann sent frá sér fleiri ljóðabækur og skáldsögur. Þrjár af bókum Jóns Kalmans hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, 2001, 2004 og 2007. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2005 fyrir skáldsöguna Sumarljós, og svo kom nóttin.

Kveðja

Virkjun



Komið og dansið Merengue með okkur!

Á Föstudaginn 17.september, kl. 14:00 verður boðið upp á létt dansnámskeið fyrir alla, góður undirbúningur fyrir helgina :)

Allir er velkomnir og engin reynsla er nauðsynleg.

Merengue er fjörugur dans frá Karabílhafinu sem er það einfaldur að allir ættu að geta lært hann. Merengue tilheyrir salsafjölskyldunni og í gegnum þennan dans er hægt að læra öll undirstöðuatriði sem nýtist í dansi almennt! 

Sjáið nokkur skemmtileg byrjendaskref hér :  Merengue

Leiðbeinandi verður Tómas Albertsson, sem hefur dansað rokk, salsa og tangó í meira en 20 ár.

Vinsamlegast sendið okkur póst á virkjunmannauds@gmail.com, skilaboð á facebook eða hringja í síma: 426-5388.

 

Come and dance the merengue with us!

Everybody is welcome and no prior experience is necessary. Friday 17.september at 14:00.

Merengue is a Caribbean dance that belongs to the Salsa family. It is simple enough for everybody to enjoy, and at the same time a great dance to learn all those importance dance moves ! Check out af few basic moves on this videclip: Merengue

Your instructor will be Tom Albertsson, who has danced rock'n roll, salsa and tango for more than 20 years.

 


Íslenska og Enska í dag

Icelandic for (total) beginners at 14:00 every Wednesday at Virkjun, everybody is welcome and no prior experience is necessary!

English conversation for all levels Wednesdays at 15:00. Everybody is welcome and no prior experience is necessary! Simply come with the knowledge you already have!

Enska fyrir alla kl. 15:00, fyrir þá sem vilja æfa sig að tala ensku eða þurfa aðstoð við enskuritgerðir eða þess háttar. Allir eru velkomnir, byrjendur sem og lengra komnir. Kennari er Tómas Albertsson.

 empathetic-child.jpg


Skapandi skrif

Hverjir hefðu áhuga á því að vera með í rithópnum Skapandi skrif ?

Hópurinn myndi hlusta á stutta fyrirlestra og skrifa svo texta út frá writing.gifeinhverju ákveðnu verkefni sem hægt væri að deila með hópnum og fá ''feedback''. Einnig er hugmynd að fá þekkta rithöfunda til að koma og deila reynslu sinni.

Endilega látið okkur vita hverjir hefðu áhuga annað hvort með því að senda okkur póst á virkjunmannauds@gmail.com , senda okkur skilaboð á facebook eða hringja í síma: 426-5388.

Kveðja

Virkjun

 


Myndlist

Við hjá virkjun erum að kanna hvort áhugi sé fyrir því að stofna myndlistarhóp sem myndi vera einu sinni í viku að mála og teikna og auðvitað spjalla saman yfir kaffibolla. Gestalistamenn myndupaint.jpg koma og deila reynslu sinni og leiðbeinendur yrðu á staðnum.

Endilega látið okkur vita hverjir hefðu áhuga annað hvort með því að senda okkur póst á virkjunmannauds@gmail.com ,skilaboð á facebook eða hryngja í síma: 426-5388.

Kveðja

Virkjun

 


Ljósanótt 2010

Virkjun óskar öllum gleðilega ljósanótt og vonar að allir skemmti sér vel, enda ekki annað hægt þar sem dagskrá helgarinnar er þéttskipuð og skemmtileg og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskrána er að finna hér:

Dagskrá Ljósanætur

 

ljosanott.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband