Færsluflokkur: Menning og listir
3.11.2010 | 14:42
Skapandi skrif
Á morgun, fimmtudag kl.13:30 er hópurinn í skapandi skrifum að hittast. Þetta er opið öllum sem langar eða eru að skrifa eitthvað. Það er rætt saman um skrif, sögur og útgáfumál svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegt að hittast og gera eitthvað uppbyggilegt saman og það kostar ekki neitt, bara mæta.
Kveðja
Virkjun
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook
2.11.2010 | 14:44
Fluguhnýtingar ÓKEYPIS !!
29.10.2010 | 11:39
ÓKEYPIS Tölvutími
Páll R. Pálsson verður með tölvutíma á Mánudaginn næsta kl. 14:00-16:00.
Kynnt verða helstu forrit og notkun þeirra. Forrit eins og Windows stýrikerfið, Word ritvinnsla, Excel töflureiknir, Powerpoint glærugerðarforrit og Google Docs.
Allir eru velkomnir og það kostar ekki neitt.
Páll mun einnig aðstoða fólk við sína tölvuvinnslu eftir því sem tök verða á.
Vonumst til að sjá sem flesta
Kveðja
Virkjun
26.10.2010 | 08:42
Heilbrigður lífstíll- ókeypis fyrirlestur
Miðvikudaginn 27.október kl 14:00 verður Sóley Birgisdóttir, lýðheilsufræðingur, með fyrirlestur í Virkjun sem heitir:
Heilbrigður lífstíll tökum ábyrgð á eigin heilsu.
Farið yfir ýmis atriði varðandi heilbrigðan lífstíl, mataræði, hreyfingu og fl. Hvernig er lífstíllinn þinn? Geturðu breytt einhverju í þínum lífstíl. Farið verður yfir þessa þætti og bent á leiðir til úrbóta.
Hvetjum alla til að mæta á þennan ókeypis fyrirlestur.
Kveðja
Virkjun
25.10.2010 | 09:59
Ljósmyndaklúbbur- Fyrirlestur
Óli Haukur Mýrdal ljósmyndari verður með fyrirlestur í ljósmyndaklúbbi Virkjunar á morgun, þriðjudaginn, 26.október kl.14:00.
Áhugi Óla á ljósmyndun byrjaði fyrir alvöru árið 2006 og hefur hann náð ótrúlegum árangri síðan. Hann hefur náð að skapa sér verkefni í gegnum þennan áhuga á ljósmyndun.
Við hvetjum alla áhugasama ljósmyndara að koma og fræðast um hver galdurinn sé við að taka mynd sem fjölmiðlar og auglýsendur eru tilbúnir að kaupa.
Vinsamlegast látið vita ef þið hafið áhuga á að koma, annað hvort með að senda póst á : virkjunmannauds@gmail.com, skilaboð á facebook eða hringja í síma: 426-5388
Kveðja
Virkjun
22.10.2010 | 13:33
Frítt Tölvunámskeið
Páll R. Pálsson ætlar í samstarfi við Virkjun að bjóða upp á námskeið í tölvuvinnslu. Námskeiðið
verður í 4 skipti, 2 klst. Í senn og er fyrst og fremst ætlað þeim sem hafa litla tölvukunnáttu.
Þáttakendum er frjálst að mæta þegar þeim sýnist, þ.e. hver námskeiðsdagur verður sjálfstæður og
ekki beint framhald af fyrri degi.
Einnig mun Páll aðstoða fólk við sína tölvuvinnslu eftir því sem tök verða á.
Tímar: Mánudaga:
25.10. kl. 14.00-16.00 Almenn tölvufræði
01.11. kl. 14.00-16.00 Helstu forrit sem kynnt verða og notkunarsvið þeirra
08.11. kl. 10.00-12.00 Netvafrar, Internetið og möguleikar þess.
15.11. kl. 10.00-12.00
Endilega látið okkur hjá virkjun vita ef áhugi er að koma á námskeiðið. Það kostar ekkert á námskeiðið.
Kveðja
Virkjun
Allir þeir sem hafa áhuga á billiard, byrjendur sem og lengra komnir eru velkomnir í Virkjun. Ókeypis kennsla í gangi fyrir þá sem vilja. Kennari Heimir Sigurðsson.
Virkjun
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook
20.10.2010 | 14:02
Á morgun, fimtudaginn 21 október kl 14:00 verður hláturjóga í boði Púlsins og Mörtu Eiríksdóttur í Virkjun.
Hláturinn lengir lífið
Á morgun ætlar Marta Eiríksdóttir að vera með hláturjóga hér í virkjun kl. 14:00. Allir eru velkomnir.
Hláturjóga er aðferð sem þróuð var af indverska lækninum Dr. Madan Kataria og Madhuri Kataria, konunni hans sem er jógakennari. Í hláturjóga er farið í jógastöður, kraftmikla öndun og léttar æfingar sem framkalla hlátur í hópnum án tilefnis. Þú þarft ekki að vera hláturmild/ur til að stunda hláturjóga því æfingarnar opna fyrir hláturinn á eðlilegan hátt.
Lífið verður mun léttara eftir tímann í hláturjóga, við bíðum ekki eftir því að það verði léttara til að hlæja. Betra er að hlæja til að gera lífið léttara!
Kveðja
Virkjun
19.10.2010 | 13:41
Fluguhnýtingar
18.10.2010 | 11:48
Mesta atvinnuleysið – lægstu framlögin
Tölulegur samanburður á framlögum ríkisins til atvinnuþróunarfélaga sýnir að Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fékk á síðasta ári 268 krónur á hvern íbúa á meðan Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða fékk 5,651 krónu á hvern íbúa. Þrátt fyrir að atvinnuleysi mælist langmest á Suðurnesjum en minnst á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þar sem ríkið greiðir 2,817 krónur á hvern íbúa til atvinnuþróunar
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) þar sem borin eru saman framlög ríkisins til ýmissa verkefna hér á Suðurnesjum miðað við framlög til annarra landshluta. Þessi samaburðir leiðir í ljós að Suðurnesin bera mun minna úr býtum heldur en aðrir landshlutar.
Heimild; Víkurfréttir. vf.is