Menningarráð Suðurnesja stendur fyrir opnum fundi um handverk og hönnun.

Allir áhugasamir á Suðurnesjum um handverk, hönnun,
listiðnað og minjagripagerð eru boðnir velkomnir á fundinn.
Aðgangur er ókeypis. Boðið verður uppá rjúkandi heitt kaffi.


Gestur
fundarins er Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
Fyrirlestur Sunnevu mun m.a. fjalla um:
• Skilgreiningar í handverki, hönnun og listiðnaði.
• Verðlagningu á handverki og listiðnaði og gæðamat.
• Minjagripir – hvað er góður minjagripur.
• Auk þess mun Sunneva kynna starfsemi HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
Eftir fyrirlesturinn gefst tækifæri til umræðna og fyrirspurna.

Vakin er athygli á að í framhaldinu mun Sunneva koma aftur til Suðurnesja og þá
verður hún með einkafundi fyrir þá sem vilja leita ráða hjá henni varðandi handverk
eða minjagripagerð.
Fundurinn verður haldinn í Bíósal Duushúsa þann 17. febrúar og hefst kl. 17:30.
Frekari upplýsingar veita menningarfulltrúar sveitarfélaganna og verkefnastjóri
Menningarráðs Suðurnesja s. 420-3288.

sss.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband